Ég hélt smá veislu. Þetta var frábær dagur. Það hafði verið rigning dagana á undan og dagana á eftir líka en þennan mánudag í nóvember var sólskin, logn og svolítið kalt. Takk allir fyrir að gera þennan dag svona ljúfan og eftirmynnilegan.
En það sem ég vildi skrifa um í þessu samhengi er hverning er hægt að halda veislu með blómum í nóvember. Þetta verður framhaldssaga þar sem blómin sem um er talað lifna við næsta vor.
En hér fyrir neðan sjáið þig boðskortið sem sumir fengu.
Tusend tak for en fantastisk dag.
-
Ég bað gesti sem sé að koma með haustlauka. Sem eru fyrir þá sem það ekki vita blómalaukar eins og túlipanalaukar, páskaliljulaukar, krókusarlaukar og fl. sem er sett niður að hausti áður en frýs að ráði og svo að vorinu springur allt út eins og brjálað. Margir af gestum komu með haustlauka og svo voru nokkrir sem hjálpuðu mér að setja þá niður áður en myrkrið skall á. Ég hafði grafið mjóan skurð í lóðina fyrir framan húsið upp við hekkið. Ég fékk marga mismunadi lauka og myndirnar hér fyrir sína sitt lítið að hverju. Það voru settir niður svolítð af hvítlauk þar fyrir utan þar sem sem þetta er líka fín tími fyrir að setja hann niður.
Þetta var rosa gaman og hressandi að fara aðeins út og leika sér í moldinni
Ég þakka líka fyrir hvað laukarnir eru ótrúlega vel valdir með natni.
Tusend tak for utrolig godt valgte efterårsløg og alle de ander pæne gaver!
Svo koma nokkrar myndir af veitingunum